Miðvikudagur, 1 október, 2003
Onlæn sjoppur

Úje.. ég var að fá sent dekkið á hjólið mitt, þannig að nú get ég þeyst á fáknum góða í vinnuna. Það er reyndar bara 13°C hér, komin vetur eiginlega bara ha...

Ég gerði engan smá díl og keypti nýtt afturdekk á 25 dollara, svona fjórðung þess sem það kostar að kaupa eitt stykki í borginni. Það er orðið fátt sem maður kaupir ekki á netinu, það er líka mjög hagstætt, af því að ef maður kaupir af verslun sem er í öðru fylki en maður sjálfur, borgar maður ekki skatt. Gömul póstlistalög frá síðustu öld segja svo til um og þau gilda líka fyrir netverslun. Þannig keyptum við okkur nýja tölvu um daginn, og fengum hana eftir fjóra daga, beint í faðminn frá Dell, alveg skattfrjálst! Reyndar er Fresh Direct í sama fylki og við þannig að við þurfum að borga skatt af þeim matvælum sem eru skattskyld, svona eins og bjór til dæmis. (Já, bjór er matvæli og það er enginn smá lúxus að fá hann bara sendan heim í stofu!). Flest heimilistækin okkar eru líka keypt "online" og sama má segja um alla jóga-DVD diskana mína.

Vei fyrir að þurfa aldrei að fara út úr húsi.....

Posted by erna at 08:10 FH