Ég ákvað að taka mér smá pásu frá lærdómnum áðan og settist í reiðuleysi mínu í sófann og ákvað að kíkja á sjónvarpsfréttir. Ég hitti akkúrat á einu fréttina sem algerlega hristi upp í heilanum á mér og dreifði huganum.
Maður nokkur hér í Harlem, kom inn á slysavarðstofu í gær með mikil sár og sagði læknum að hann hefði verið bitinn af bolabít. Eitthvað trúðu læknarnir honum ekki og hringdu á lögregluna. Löggan fór heim til mannsins, sem býr í blokk, engu einbýlishúsi með bílskúr sko, og kom í ljós að í íbúðinni var krókódíll og fullvaxið Bengal-tígrisdýr. Geri aðrir betur.
Svo var sýnt þar sem lögreglumaður seig úr íbúðinni fyrir ofan, niður að stofuglugga mannsins, og þegar lögreglumaðurinn kom að glugganum, sást þar sem tígrisdýrið stökk að honum og sló í gegnum rimlana á glugganum (svona rimlar til þess að passa að börnin detti ekki út). Löggan slapp þó og skaut tveimur deyfihylkjum í dýrið til að svæfa það og svo var skepnan, sem vóg 800 pund borin út, ásamt krókódílnum.
Þegar nágranninn var beðinn um viðbrögð gat hann bara sagt "WOW".