Ég er eins og Flugleiðavél þessa vikuna, algerlega yfirbókuð!
Það var gaman í gær, við hittum hana Marý og vinkonu hennar niðri í bæ og fengum okkur sússí og kjöftuðum. Marý var náttúrulega hress eins og alltaf!
Í kvöld átti ég svo að vera að undirbúa fyrirlestur, en ákvað að skella mér bara í staðinn í spinning, fyrirlesturinn reddast, a.m.k. reddaði ég því að við fengjum aftur ókeypis hádegismat, þannig að fólk verður kannski bara með svo fullan munninn að það getur ekki sett út á það sem ég er að segja....
Annað kvöld var planið að fara út að borða með Em og vinkonu hennar, en þá hafði Guðný Kata vinkona bara samband og sagðist verða í borginni. Ég náttúrulega verð bara að hitta hana og Reyni manninn hennar, hef ekki séð hana í nær tvö ár!
Á miðvikudaginn er svo bara fríkvöld, ekkert planað, nema kannski nokkur sett í bekkpressu og hamagangur á þrekstiga.
Á fimmtudaginn vandast svo aftur málið, því að seinnipartinn er hinn árlegi Fulbright-kokkteill raunvísindadeildar Kólumbíu, spinning, bjórkvöld Íslendinganna og matarboð. Úff.. ætli ég endi ekki bara á því að sleppa þessu öllu í einhverju stresskasti. Vona ekki samt.
Á föstudaginn eru það hvorki meira né minna en Radiohead tónleikar, jibbí skvibbí. Svo var búið að plana djamm eftirá með genginu, en þá bauð hún Lára Sif okkur í afmælispartý, þannig að við kíkjum sennilega bara þangað eftir tónleikana.
Dæmigert samt bara, ha! Ekkert mikið um að vera í síðustu viku og svo er þessi vika bara alger geðveiki. Ég er nú samt ekkert að kvarta, því að þetta er afskaplega gaman allt, að hitta gamla vini, borða úti og fara á tónleika. Ég fékk samt bara smá stresskast yfir þessu í smá tíma í hádeginu, kannsk aðallega af því að ég held líka fyrirlestur á morgun..
Bara verst að þetta hafi ekki dreifst á tvær vikur, þannig að ég gæti gert þetta allt...