Oh.. hvað er meira kósí en að sitja inni í náttbuxunum þegar það er hellirigning úti. Við hjónin erum búin að sitja í sófanum í kvöld og kjafta saman og hlusta á rigininguna dynja fyrir utan gluggann.
Ég eldaði líka svo góða súpu í kvöld. Kartöflu-lauksúpu með fennel og káli (kale, ekki cabbage). Heit súpan tónaði vel við rigninguna og jók kósifaktorinn margfalt.
Við erum nefnilega farin að deila með Josh og Melissu, nágrönnum okkar, lífrænt ræktaða grænmetinu sem þau fá sent í hverri viku frá fyrirtækinu Urban Organics. Þetta virkar þannig að við fáum kassa með grænmeti og ávexti sendan heim á þriðjudögum, en við fáum ekki að ákveða hvað er í kassanum.
Mér finnst þetta mjög sniðugt, bæði af því að maturinn er lífrænt ræktarður og svo útaf "sörpræs faktornum". Reyndar rennum við ekki alveg í blindan sjóinn með innihald kassans, því að innihaldið birtist á netinu nokkrum dögum áður. Þannig að ég var búin að ákveða fyrirfram hvað ég ætlaði að elda og gat því bara drifið í því þegar ég kom heim um níuleytið, en ég hefði aldrei nennt því ef ég hefði fyrst þurft að velta því fyrir mér hvað ég ætti að elda.
Sörpræs faktorinn er góður að því leyti að ég hefði aldrei gert kartöflusúpu í kvöld, en fyrst að ég fékk kartöflur þurfti ég að finna eitthvað til að gera úr þeim og endaði á því að smakka eitthvað nýtt. Eins hefði ég ekki eldað "candied yams", eða sæta kartöflustöppu úr sætum kartöflum með kanil og negli, sem meðlæti með acorn squash pottréttinum sem ég útbjó á laugardaginn. (Ég biðst velvirðingar á slettunum, en ég bara kann ekki íslensk orð yfir svona grænmeti og Ensk íslensk orðabók Arnar og Örlygs kann þau ekki heldur).
Þannig að undanfarið er ég búin að elda slatta af réttum sem ég hef ekki prófað áður, til þess að koma lífrænu ávöxtunum og grænmetinu fyrir kattarnef. Í gær var grænmetið samt búið og ég borðaði bara karríkúskús með rúsínum, eldað á fimm mínútum. Mörður lét nú ekki bjóða sér þannig hænsnafóður og fékk sér seríós og M&M's í kvöldmat. Geri aðrir betur.....