Brrr... það virðirst ekki vera neitt heitt vatn í húsinu... Að minnsta kosti kemur lítið af því úr sturtunni. Oh. Þannig að annað hvort þarf ég að gefa mér tíma í bucket shower eða fara með hárið út í loftið í vinnuna. Það er bara tólf stiga hiti úti, þannig að mig langar ekki alveg að fara bara í kalda sturtu og plampa svo út.
Annars má segja að haustið hafi komið í þessari viku. Nú eru trén farin að gulna og svona og von bráðar má vænta mikillar litadýrðar í görðum borgarinnar. Hitinn lækkar líka smám saman og vindstyrkurinn eykst. Mér finnst þetta reyndar bara fínt, því að það er auðveldara að fara út að hlaupa í svona veðri en þrjátíu stiga hita. Reyndar er galli að bráðum hættir "daylight savings time", þ.e. við skiptum yfir á EST, eystri staðaltíma eða hvað það nú kallast. Þá verður alltaf orðið dimmt um fimmleytið og ekki sjéns að ég komist út að hlaupa nema um helgar þegar ég er stutt á labbinu.
Já, það er ekki á allt kosið!
Annars mæli ég sko með útihlaupum til að slaka á huganum. Ég kemst oftast í svona eitthvert hugleiðsluástand þegar ég hleyp. Kannski útaf rytmískum andadrættinum í takt við floínk, floínk, floínk... plampið í mér. Og oftar en ekki þar sem ég hef verið að hlaupa í mínu grandvaraleysi hefur góðri hugmynd lostið niður í huga mér, án þess að ég hafi verið að hugsa um nokkurn skapaðan hlut! Ég hef nú reyndar aldrei fengið jafnfrábæra hugmynd á hlaupunum og hún Vala, en hver veit...