Ég fór á endanum í fötusturtu í gær, hitaði fimm lítra af vatni og hellti þeim yfir mig í baðkarinu og dreif mig í vinnuna.
Þegar ég svo hringdi í Mörð seinnipartinn var ennþá heitavatnslaust og hann og Josh höfðu varið deginum í að reyna að ná í viðhaldsfólk, en þeir fengu símsvara á öllum skrifstofum og Doug húsvörður (yfirleitt kallaður Super Doug), var í fríi. Ástæðan fyrir því að enginn sat við skrifborðið sitt var að í gær var haldið upp á 250 ára afmæli Kólumbíu með stærstu tertu í heimi úti á skólalóð (hnallþóran sú kostaði bara 30 þúsund dollara, eða yfir 4 millur). Allir sem vettlingi gátu valdið voru því úti að éta tertu.
Loksins seint um seinnipartinn tókst þeim að ná í einhvern sem sagðist ætla að senda viðgerðarmann strax af stað, en ekkert gerðist, viðgerðarmaðurinn hefur sennilega farið á barinn frekar en heim til okkar. Gaurinn sem stjórnaði aðgerðinni hringdi meira að segja í okkur um tíuleitið til þess að segja okkur að við værum komin með heitt vatn, þrátt fyrir að ekki kæmi dropi af því úr krönunum.
Og nú var ég að skríða framúr og auðvitað er ekkert heitt vatn núna heldur. Ég hringdi aftur í viðhaldsliðið og þau sögðu að það væri einhver á leiðinni til okkar. Ég sagði henni kurteisislega að við værum orðin pínu óþolinmóð af því að það hefði verið heitavatnslaust í heilan sólarhring. Svarið sem ég fékk var, já, en það kom manneskja í gær til að laga þetta.
Eins og það hjálpi eitthvað að vita af því þegar allt uppvaskið bíður og svitafýlan angar út handarkrikunum á manni á meðan maður hugsar sig um hvort maður eigi að nenna í aðra fötusturtu...