Ég las pistil í Nature Reviews Cancer í dag þar sem fjallað var um rannsókn sem gerð var á rúmlega eittþúsund karlmönnum. Þeir voru einfaldlega spurðir spurninga um kynhegðun og svo voru svörin þeirra flokkuð og borin saman við tíðni blöðruhálskrabbameins hjá körlunum.
Niðurstaðan var einföld. Eftir því sem að karlmenn fróa sér oftar fyrir fimmtugt, þeim mun minni líkur eru á að þeir fái blöðruhálskirtilskrabba síðar á ævinni. Sérstaklega var tekið fram að ef karlmenn á þrítugsaldri hafa sáðfall fimm sinnum eða oftar í viku að jafnaði, virðist dragast verulega úr sjúkdómslíkum. Ástæðan fyrir þessu er talin vera að við sáðfall hreinsist óhreinindi og skaðleg efni úr kritlinum og minnki því hættu á skaðlegum stökkbreytingum í erfðaefni blöðruhálskritilsfrumanna.
Þannig að strákar: Go for it!