Fimmtudagur, 23 október, 2003
Kokkteilboðið

Ég var að koma heim af Fulbright-kokkteilnum hjá IIE. Það var ekkert smá gaman, ég spjallaði við fólk frá Japan, Kína, Úkraínu, Svíþjóð, Noregi, Argentínu, Danmörku, Brasilíu og Perú.

Skyrtertan mín sló í gegn. Við vorum báðar (ég og skyrtertan) merktar Íslandi, þannig að það var ekki erfitt fyrir fólk að finna út hver hafði búið hana til og allan tíman var fólk að koma til mín og segja mér hvað tertan væri góð. Ég var náttúrulega svaka upp með mér, en það besta var að tertan var alger æsbreiker á samræður, þar sem fólk kom til mín til þess að tala um tertuna og svo spunnust af því ýmsar samræður.

Ég fékk meira að segja bónorð út á tertuna blessaða, því að þegar Jakob hinn danski smakkaði hana, spurði hann mig hvort að ég vildi ekki bara giftast sér. Ég svaraði bara "Desværre, men jeg er allerede gift."

Mér finnst alltaf gaman að koma inn að IIE, en stofnunin er staðsett á United Nations Plaza, beint á móti byggingu Sameinuðu Þjóðanna. Eftir boðið ákvað ég að labba alla leið inn á Times Square í staðinn fyrir að taka skuttluna frá Grand Central. Ég kem svo sjaldan svona "midtown", maður er annað hvort hér uppfrá, eða fer alla leið suðreftir. Það er eitthvað bara svo klikkað að ganga þarna á milli skýjakljúfanna og koma svo inn á yfirþyrmandi ljósadýrðina við Times Square. Þessi borg er svo klikkuð. Hún getur verið allt sem maður vill að hún sé, maður þarf bara að hafa sig eftir því. Eða eins og klisjan segir: "New York is a state of mind".

Posted by erna at 10:12 EH
Íslandsfararnir

Ég var að koma frá Adelene, en ég fékk mér kvöldmat með henni og Yin Mei og þær sýndu mér myndir frá Íslandi og við borðuðum mat frá heimalandi foreldra þeirra, Malasíu.

Ég fékk líka að eiga allar Bingólakkrískúlurnar hennar Adelene, henni fannst þær of harðar undir tönn. Heppin ég =). Við fengum líka lítra af brennivíni, rjómasúkkulaði og svo fékk ég mynd af mömmu, Hrafnkeli, Ástu, Gísla og Guðnýju með þeim Adelene og Yin Mei. Ég er nú ekki búin að sjá fjölskylduna í meira en ár, svo það var gaman að sjá þau alla vegana svona á mynd!

Þær virtust hafa skemmt sér mjög vel á Fróni stelpurnar, voru alveg í skýjunum með lundaveisluna, smökkuðu líka hval, sáu fullt af fossum, skriðjökul, fóru á hestbak, sáu svarta fjöru, lentu í íslenskri rigningu eins og hún gerðist best, sáu goshveri og hlustuðu á íslenska tónlist.

Ég er ekkert smá abbó!

Posted by erna at 12:04 FH