Föstudagur, 24 október, 2003
Hoffman í apótekinu á horninu

Oh.. svekk, svekk, svekk. Haldið þið ekki bara að hann Mörður hafi bara rekist á hann Philip Seymour Hoffman hér útí í apóteki. Ég er ekkert smá svekkt að hafa misst af því, því að mér finnst Philip vera sætasti Hollívúddleikarinn. Ég ætlaði varla að ná mér eftir það í gær þegar Mörður sagði mér að hann hefði séð hann. Mér finnst þetta ósanngjarnt, því Möddi ber ekki mikið skynbragð á kynþokka þessa manns.

Posted by erna at 08:11 FH