Æji, það var einhver stressdagur hjá mér í dag. Það kemur mjög sjaldan fyrir að ég sé eitthvað stressuð, venjulega er bara gaman í vinnunni og þeim mun skemmtilegra eftir því sem það er meira að gera.
En í dag er eins og ég hafi farið öfugum megin frammúr. Að minnsta kosti voru vísindin eitthvað skrýtin við mig. DNAið mitt meltist ekki, þannig að ég þarf að fresta suðurblettuninni um viku, og svo fékk ég neikvæða niðurstöðu í tilraun sem ég er búin að vera að baksa við. Það góða við það er nú samt að ég fékk niðurstöðu, spurningunni var svarað og ég get spurt næstu spurningar, en samt, pínu svekk. Og svo þurfti ég að vera að vesenast við allskonar skriffinnsku, sem var alls ekki gaman.
Ég fór því bara snemma heim og eldaði kvöldmat og núna er ég algerlega búin á því. Ég eldaði reyndar alveg svaka góðan mat. Svona suðuramerísk tómathrísgrjón, svartbaunarétt með fennel og fleiru góðu, soðið dökkt kál og svaka sterka tómat-lauk-chillisósu. Yum.
Og núna er ég alveg afvelta, stressið alveg bráðið af mér og ég er að klára litscan á PNAS fyrir morgundaginn...
Ég þarf að huxa hratt núna, því ég þarf að finna eitthvað gervi fyrir hrekkjavökuna á föstudaginn. Ég var að spá í að vera vísindamaður og mæta í hvítum slopp með hlífðargleraugu, en það væri nú eiginlega ekki grímubúningur að mæta svona næstumþví í vinnufötunum. Mörður sagði mér að ég ætti bara að leika mús, en mér finnst það pínu ósmekklegt. Huh.. Kannski ég ætti bara að vera jólakötturinn, en það myndi náttúrulega enginn fatta þann brandara og ég myndi þurfa að útskýra söguna svo oft að ég fengi gubbuna.
Bleh.. ég hlýt að fatta upp á einhverju =)