Veðrið er búið að leika við okkur þessa helgina, yfir tuttugu stiga hiti, sól og blíða. Það er náttúrulega ekkert smá viðeigandi, því að foreldrar Marðar eru í heimsókn, þannig að við erum búin að plampa alla borgina þvera og endilanga.
Það er eiginlega á svona helgi sem maður lærir að meta hvað þessi borg er klikkuð, endalausar uppákomur í gangi, allt frá litlum röppurum og dönsurum að sýna listir sínar í gosbrunni í Washington Park upp í maraþon að klárast í Central Park. Mannlífið er svo fjölskrúðugt hérna. Það var heldur ekki verra að þau komu að kvöldi Halloween þannig að þau sáu New York búa skarta sínu fríðasta í grímubúningum á leiðinni um bæinn.
Við plömpuðum líka um suðurodda eyjunnar á laugardaginn, fórum í Chinatown, borðuðum klikkaðan víetnamskan mat í Doyer's street og fengum svo alvöru ítölsk sætindi og ís í littlu Ítalíu. Við erum sko búin að borða víetnamskan, amerískan, perúskan, eþíópskan, ítalskan, indverskan og tyrkneskan mat um helgina.
Það eru líka svo ótrúlegar andstæður alls staðar í borginni, maður er kannski hættur að taka eftir því, en þegar maður fær gesti, sér maður borgina aftur í gegnum augu ferðamannsins. Elsti hluti borgarinnar er suður í fjármálahverfinu, en þar má sjá skýjakljúfa tróna yfir borginni, en inn á milli eru ævagömul lágreist hús með sögulegt gildi, eins og uppáhalds pöbbinn hans George Washington, heil gata með byggð í gömlum hollenskum stíl, en það voru náttúrulega Hollendingar sem byggðu fyrst borgina og hét hún þá Fort Amterdam. Þannig að á stuttum tíma getur maður eiginlega verið á Ítalíu, í Kína og á Hollandi.
Svo er náttúrulega klikkað að kíkja upp á Times Square og sjá alla ljósadýrðina, en það er svo yfirþyrmandi að fólk fellur yfirleitt bara í stafi. Og eins að fara í Central Park og njóta garðarins, en líta svo við og sjá skýjakljúfanga tróna yfir garðinum. Frekar klikkað!
Við Mörður erum búin að vera í alveg jafnmikilli utanlandsferð um helgina og foreldrar hans, en það er eins og ég segi alltaf. Að búa í þessarri borg er oft eins og að vera í stöðugri utanlandsferð. Hún hættir aldrei að koma manni á óvart, það er alltaf eitthvað nýtt að sjá, nýr matur að borða og nýjar uppákomur. Það eru engin smá forréttindi að fá að búa hér í nokkur ár!