Það var tómlegt að koma heim í gærkvöldi, Mörður í skólanum og Sigga og Finnbogi farin. Þetta var náttúrulega alveg þrusuhelgi, en við vorum frekar framlág hér í gærkveldi eftir ósköpin! Við enduðum á því að fara bara eldsnemma að sofa.
Það kom mér þægilega á óvart í morgun þegar ég vaknaði að ég er enn á sumartíma, þannig að ég vaknaði klukkan sjö eins og á hverjum degi í síðustu viku. Þetta á algerlega eftir að vinna mér í hag þessa vikuna líka!