Laugardagur, 6 desember, 2003
Úti er alltaf að...

Og enn snjóar! Ef ég verð dugleg næstu tvo-þrjá tímana næ ég að fara út að hlaupa í Central Park. Það lítur örugglega allt út þar eins og í ævintýri um snædrottninguna. Hestakerrurnar búnar að setja blæjurnar upp og sennilega ekki margir á ferli. Það var reyndar kapphlaup í garðinum í dag, á vegum New York Road Runners Club og það voru nokkur hundruð manns sem mættu og hlupu. Ég get nú ekki verið eftirbátur þeirra er það?

Posted by erna at 12:57 EH