Mánudagur, 8 desember, 2003
Hlaupasnjór

Það var alveg geðveikt veður hér um helgina, eins og lesendur hafa ekki farið varhluta af. Eins og ég hafði lofað sjálfri mér fór ég út og hljóp átta kílómetra hringinn minn í Central Park á laugardaginn, í snjókomu og skafrenningi. Ég átti einhvern veginn aldrei von á því að upplifa skafrenning á Manhattan, en það hefur nú komið fyrir nokkrum sinnum nú þegar og ég er bara búin að búa hér í rúm tvö ár.

Það var alveg frábært í garðinum á laugardaginn og mikið af fólki á ferli, þrátt fyrir að fjölmiðlar reyndu að ljúga því að okkur að borgin lægi í lamasessi og það væri bara ekki hundi út sigandi. Það var eiginlega alveg ótrúlega margt fólk í garðinum. Ég öfundaði allt gönguskíðafólkið sem leið um garðinn og líka krakkana sem þeystust niður brekkurnar á sleðum, snjóþotum og sambrotnum pappakössum. Það var líka pínu rómantískur fílíngur í gangi með allan þennan snjó og það voru fjölmörg pör sem gengu um og héldust í hendur og nutu veðursins. Það voru reyndar ekki margir hlauparar á ferli þegar ég var þar, enda var það löngu eftir að hlaupakeppni Road Runners klúbbsins var um garð gengin.

Ég hljóp ansi greitt, var eitthvað svo uppveðruð af stemningunni og veðrinu, fannst ekkert smá gott að fá kaldan skafrenninginn í andlitið, en ég hafði búið mig vel og var því frekar heitt en kalt. Ég hljóp hringinn á þremur mínútum lengri tíma en ég er vön, sem er ekkert smá gott, því að það var oft erfitt að ná spyrnu á götunum og það var mikill snjór á stígnum í kringum vatnsbólið. Ég er hins vegar að borga fyrir það núna, þar sem ég er öll að stífna upp og að fá harðsperrur, samt kannski aðallega eftir allar armbeygjurnar sem ég gerði í kjölfar hlaupsins.

Posted by erna at 03:44 FH
Jeg kan ikke sove...

Oh... ég er svo sybbin, en ég get ekki sofið. Ég er búin að velta mér fram og til baka í rúminu í þrjá klukkutíma en ákvað svo að drífa mig bara fram og kíkja aðeins í bók og blogga og svona. Þetta er reyndar búin að vera mjög pródúktíf andvaka svo að ég segi ekki meir.

Ég kom eftirfarandi í verk:

- Skipulagði (í huganum) fyrirlesturinn sem ég held í Data Club þann 17. des. Reyndar með þeim forsendum að tvær tilrauna minna gangi eftir.

- Samdi umsögn/gagnrýni (í huganum) um vísindagreinarnar sem að við tökum fyrir í Journal Club á þriðjudaginn. Þetta voru tvær frekar flottar greinar frá því í sumar úr Immunity og ég var eitthvað búin að hiksta á að krítísera þær, en það gekk eftir með smá skammti af andvöku.

- Fékk hugmynd að rannsóknartillögu fyrir lokaritgerðina í ónæmisfræðikúrsinum mínum, en ég á að skila henni í lok næstu viku.

- Skipulagði tilraunir sem ég ætla að gera á þriðjudaginn.

- Velti fyrir mér heillengi hvað ég ætti að elda fyrir doktorsvarnarpartý samstúdents míns á miðvikudaginn. Komst ekki að nokkurri niðurstöðu. Góður forréttur -anyone?

- Ákvað endanlega að skyrterta yrði fyrir valinu sem rétturinn sem ég geri fyrir jólapartýið í næstu viku.

- Gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að finna tíma til þess að pakka inn öllum jólagjöfunum sem við sendum heim til Íslands. Af hverju þurfti ég endilega að lenda með Data Club og ritgerðarskil í sömu vikunni og það rétt fyrir jól?

Það er kannski ekki svo slæmt að vera andvaka annað slagið. Að minnsta kosti virðist það ekki bara hafa sína galla....

Posted by erna at 03:29 FH