Föstudagur, 12 desember, 2003
Góð þjónusta

Það hefur ansi oft komið fyrir síðan við fluttum til NY að við höfum fengið lélega þjónustu, bæði í verlsunum og þjónustufyrirtækjum. Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef gengið út úr fyrirtæki og heitið því að fara þangað aldrei, en það hefur komið ansi oft fyrir.

Við gerum mikið að því að kaupa vörur á netinu og til þess notum við oftast Amazon. Kosturinn við það að versla svona á netinu er að maður þarf ekki að díla við heimskt og óþolandi starfsfólk og einnig að vörurnar eru oftast til. Þar eð maður þarf ekki að hafa áhyggjur að því að varan sé ekki til á lager. Gott dæmi um slíka reynslu er ferð til Ikea í ágúst.

Svo er líka afar þæginlegt að fá vöruna beint heim í stofu. Stundum kemur USPS með pakkann en stundum UPS. UPS gaurinn er ansi fínn gaur, maður kjaftar alltaf smá við hann, svona tilgangslaust small talk bull um ekki neitt. Hann sér um hverfið sem við búum í og því er það alltaf sami garuinn sem kemur. Nema hvað í dag var ég að ganga heim götuna okkar og var á Broadway horninu þegar ég heyri þetta líka svakalega gól. Slíkur var krafturinn að ég leit við og sá UPS bílinnUPS gaurinn kalla á mig "I have a delivery for you!". Ég gekk að bílnum, hann náði í pakkann og ég kvittaði, illa sáttur og þakkað ofur-kærlega fyrir mig. Þetta kalla ég góða þjónustu.

Það er reyndar stefna hjá UPS að delivery fólkið hjá þeim sé svona vinalegt. Brosi, kjafti og svo framveigis. Allir eiga alltaf að vera ágnægðir þega UPS kemur með pakka. Það kom UPS svo sannarlega í koll fyrir einhverjum árum síðan. Delivery fólkið vildi hærri laun og að sjálfsögðu, eins og við öll þekkjum, vildi UPS ekki greiða hærri laun. Nema hvað að úr varð verkfall og svolítið sniðugt gerðist. Þar sem allri fíla UPS heimsendingarmanneskjuna þá stóð allur almenningur í Bandaríkjunum með delivery fólkinu sínu. Vegna þrýstings gafst UPS upp og veittu þeim launahækkunina. Stundum getur gott plan snúist illa í höndumum á mönnum.

Hér eftir mun ég alltaf standa með mínum UPS manni.

Posted by mordur at 05:10 EH