Púff, það er brjálað stress í gangi hjá okkur báðum þessa dagana. Mörður fer í lokapróf í vikunni, tvö á mánudaginn og tvö á fimmtudaginn, en ég á að halda fyrirlestur á miðvikudaginn og skila ritgerð í valkúrsinum mínum á Þorláksmessu og á meðan þarf ég að halda fullum afköstum á labbinu, en þar bætast alltaf á mig verkefnin.. púff. Venjulega finnst mér þetta gaman, en þegar ofaná þetta alltsaman bætast jól verður þetta pínu klikkun... Jól með öllu stressinu mínus afslöppun þegar geðveikin er yfirstaðin, ekki gaman.