Þriðjudagur, 16 desember, 2003
Jólagjafalisti...

Oh.. ég fann loksins gjafalista fyrir nörda eins og mig. The Scientist var með svona lista yfir gjafir fyrir okkur nörrana. Þar á meðal var græni leysigeislabendillinn, sem drífur meira að segja 2.6 km. Ég væri þokkalega til í að mæta í Data Club á morgun með svona bendil!

Svo er það spurning hvort að maður fái sér ekki bindi með einhverjum sýklinum á. Hversu yndislega skemmtilega nördalegt er það ekki að eiga bindi með svarta dauða eða kannski bara berklum? Slær samt ekki út amínósýrubindi ónefnds háskólaprófessors...

Linkur frá SAOVI...

Posted by erna at 08:57 FH
Gandhi

Stóðst ekki mátið og hermdi á eftir Herdísi á meðan ég sat og rehydreraði mig eftir rauðvínsdrykkju kvöldsins.



What Famous Leader Are You?

Hversu kúl er það að vera Gandhi?
Og hversu kúl er það að ég hef þrisvar sinnum sett netpróf hingað inn og eitt þeirra skipta var á sama degi fyrir tveimur árum? Rétt eins og að þrettánda desember fyrir tveimur árum var fyrirsögn færslunnar AAAAAAAAAAAARRRRRRRRRGGGGGGGGG eins og þann þrettánda des. í ár?

Er þetta kannski merki um að ég sé farin að endurtaka mig og eigi bara að hætta að blogga? Ég hef a.m.k. ekki mikinn tíma til þess þessa dagana...

Posted by erna at 12:07 FH