Sunnudagur, 28 desember, 2003
Jóla-hvað!

Jæja, orkubúskapurinn er aðeins að rétta við sér núna og ég get loksins hugsað mér að fara að blogga aðeins! Desembermánuður er eins og í móðu í minningunni, eintómt stress og kjaftæði, en núna er ég búin að slappa aðeins af.

Við áttum alveg frábær jól. Ég tók mér aðfangadag í frí og varði honum við eldamennsku. Við buðum Binnu og Björku í mat og elduðum kalkún með tilheyrandi meðlæti. Ég byrjaði að elda klukkan tíu um morguninn, af því að bóndinn hafði skellt sér í Fairway og keypt tuttugu og eins punda kalkún í jólamatinn. Það var samt mér að kenna, því að ég bað hann að kaupa svona tólf þrettán punda kalkún, ekki minni, því að þeir vilja verða þurrari við eldun. En það voru því miður bara til átta punda kalkúnar, lífrænt ræktaðir og ósmjörsprautaðir, og svo bara yfir tuttugu punda skepnur, þannig að úr varð að kaupa einn stóran. Því varð eldamennskan að hefjast svona snemma.

Ég sauð líka rauðkál með eplum, kanil og rúsínum, gerði "candied yams" að hætti Moosewood, hvítlaukskartöflustöppu, trönuberjahlaup með kanil og engifer og grillaði tómats-kúrbítsblöndu í mintukryddlegi. Ég fyllti líka kalkúninn með fyllingunni hennar mömmu. Þegar ég fann lyktina af fyllingunni, komu jólin, svo tilheyrandi var hún.

Adelene kíkti líka til okkar áður en hún flaug til Hong Kong, og skálaði með okkur í freyðivíni og spjallaði. Þáttaka hennar í kalkúnabakstrinum var ómetanleg, en hún lánaði mér pinna til að loka fyrir fyllinguna, pensil til þess að smyrja hann með og gaf mér mörg góð ráð. Rétt eins og mamma, en hún sendi mér uppskriftina sína, sem ég fór eftir að mestu. Þannig að þetta var eiginlega kalkúnn að hætti Ragheiðar og Adelene!

Binna og Björk komu svo um sjöleytið, en kalkúnnin var ekki til fyrr en um hálfníu. Og svo tók okkur þrjú korter að borða mat sem hafði tekið nær hálfan sólarhring að elda. Hann var ljúffengur þó að ég segi sjálf frá. Það fyndna var að við vorum alveg að springa eftirá, öll fjögur, en höfðum það samt rétt af að borða helming annarrar bringunnar, restin stóð óhreyfð. Það verða kalkúnaafgangar í matinn hjá okkur næstu vikur get ég sagt ykkur!

Við erum svo bara búin að taka því rólega, ég fór að vísu í vinnuna á jóladag, en svo fórum við út að borða á víetnamska staðinn Monsoon, sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur og fórum svo til Binnu og Bjarkar og spiluðum Matador við mikla gleði og fögnuð.

Svo erum við líka bara búin að vera að njóta borgarinnar, rölta um Kínabæ, borða tíramísú í Litlu-Ítalíu og svo erum við að fara á mettið seinnipartinn.

En fyrst ætlum við að fara út að hlaupa, því að ég verð að prófa nýja púlsmælinn með GPS-staðsetningarkerfinu sem Mörður gaf mér í jólagjöf!

Posted by erna at 12:49 EH