Mánudagur, 29 desember, 2003
Tungltenging

Mörður kallinn þekkir mig nú vel, hann má eiga það! Hann fékk þessa fínu hugmynd að jólagjöf handa mér um daginn þegar ég fór út að hlaupa í Central Park með GPS tækið mitt til þess að mæla hvað hringurinn væri langur.

Eins og ég minntist á í síðustu færslu, gaf hann mér GPS-púlsmæli. Hvílík hamingja! Græjan lítur út svona bara eins og venjulegur púlsmælir, sem maður vefur utan um brjóstkassann á sér, nema það fylgir GPS-nemi með líka, en hann á að hafa á upphandleggnum eða að næla hann í buxnastrenginn. Svo nemur úrið gögnin frá báðum nemunum og segir hvað maður fer hratt, hvað maður sé búinn að fara langt og hversu hratt hjartað í manni slær. Einnig er hægt að láta græjuna reikna út hámarkshraða og hámarkspúls ogégveitekkihvað.

Svo er restin af gjöfinni á leið í pósti, en það er einn neminn enn. En hann nemur, rétt eins og úrið, merkið frá púlsmælinum og GPS-tækinu, en þessa græju er hægt að stinga í samband við tölvu og fá svo nákvæman prófíl yfir hlaupið. Oh.. það er svo gaman að vera nörd.

Ég lít líka alveg svakalega gáfulega þegar ég fer út að hlaupa með allar þessar græjur. Fyrir utan það að vera með púlsmæli um bringuna er ég líka með MP3-spilara, GPS-nema og bráðum, gagnasafnara í buxnastrengnum. Ég er mest hissa á því að það skrölti ekki í mér á hlaupunum.

Svona græju fylgir samt einn galli. Núna verð ég að hætta að ímynda mér að ég hafi verið að hlaupa ótrúlegar vegalengdir. Ég verð að hætta að hlusta á röddina inni í mér sem klappar mér á bakið að hlaupi loknu og sannfærir mig um að þetta hljóti nú bara að hafa verið heilir sjö kílómetrar sem ég hljóp. Því nú stendur það svart á hvítu á armbandsúrinu mínu. Sjökílómetrahringurinn er 6.6 kílómetrar, hvorki meira, né minna. Hringurinn minn minnkaði allt í einu um heil fimm prósent.

En það gerir lítið til. Aukna þyngdin sem ég ber utan á mér í græjum, til þess að komast að þessari niðurstöðu, gerir það örugglega að verkum að ég brenni fimm prósent fleiri kaloríum á kílómetra. -Er það ekki annars?

Posted by erna at 09:08 EH