Mánudagur, 19 maí, 2003
Duct tape er til margra hluta nytsamlegt

Um helgina tók ég mig til og gerði íbúðina mína að svona "Level zero, biohazard containment area". Ég setti upp loftkælinguna og svo teipaði ég vandlega með svokölluðu "duct tape" fyrir allar rifur í kringum gluggana sem ég mögulega fann. Þetta var reyndar frekar súrrealístískt, því að það er einmitt þetta sem liðið sem er mest hrætt við bioterrorisma gerir. Nágrannarnir mínir hafa sennilega haldið að ég væri endanlega farin yfirum ef þeir hafa rekið nefið út og séð hvað ég var að bedúa þarna uppi í gluggakistu. Íbúðin lítur líka pínu skerí út með blátt og silfurlitað teip svona út um allt, kannski ekki flottasta innanhússkreytingin sem ég hef framið um dagana.

Svo keypti ég líka filter í loftkælinguna, sem á að halda frjókornum í burtu og ryksugaði hvern krók og kima íbúðarinnar. Eftir allt þetta versen var mesta svekkið að komast að því að þetta virkar ekki og þrátt fyrir mikla fyrirhöfn finnur frjóið sér leið inn í íbúðina á einhvern hátt. Það er líka frekar ógnvænlegt að horfa út um gluggann hjá mér á stóru birkitrén í bakgarðinum og risarisarisa frjóhirslurnar þeirra og að hugsa til þess að vegna þess að garðurinn er alveg umkringdur húsum, þá komist frjóið ekki í burtu og bara liggur hér yfir!

Ég þarf því bara að bíta í hið súra ofnæmisepli og bíða í nokkrar vikur, þangað til að þetta líður hjá. Er einhver til í að skrifa fyrir mig qualifying ritgerð á meðan?

Posted by erna at 06:33 EH
Geir Ágústsson dóni.

Ég lýsi því hér með yfir að Geir Ágústsson fær ekki að kommenta aftur á þessarri síðu. Fyrir sinn hroka og dónaskap. Hingað til hefur hann þó haldið sig nokkurn veginn á mottunni og mest verið með hroka en ekki neitt endalausan dónaskap. Nú hefur hann hins vegar tekið upp á því að vera með ómálefnaleg komment á mig á almannafæri og því segi ég bara, drukkni þú sjálfur í þínum eigin drullupolli Geir Ágústsson. Hér eftir verða komment þín strokuð út af þessarri heimasíðu.

Ykkur finnst ég sennilega ganga of langt, en Geir gerði það líka, takk fyrir.

Posted by erna at 08:44 FH