Fimmtudagur, 22 janúar, 2004
Geeeeiiiiisp

Uhghmrfff...

Ég sit hérna og sötra morgunkaffið, ansi mygluð. Ég fór ekki að sofa fyrr en um klukkan fjögur og fór á fætur rúmlega sjö. Ástæðan fyrir þessari óvenjulegu hegðun af minni hálfu? Jú, ég var að gera tilraunir til þess að sýna á labbfundinum mínum, til klukkan níu í gærkvöld, og byrjaði ekki að semja sjálfan fyrirlesturinn fyrr en um tíuleytið. Og nú þarf ég að skondrast út í búð að kaupa beyglur oní liðið og drífa mig svo af stað...

Æ, hvað það verður gott þegar þetta er búið.

Posted by erna at 08:22 FH