Fimmtudagur, 29 janúar, 2004
Meira líffræðiblogg

Enn einn góður dagur í höfn. Mikið er það nú annars bara gott!

Ég pantaði inn efni í nýju frumuræktirnar mínar í dag fyrir um þúsund dollara, hvorki meira né minna. Nú á sko að bretta upp ermarnar og fara að rækta keratínócytur, eða húðfrumur í þartilgerðum diskum.

Þetta er reyndar alveg hreint svakalega kúl system. Maður tekur húðfrumur og sáir þeim í disk ofan á fíbróblasta (gawd, sorrý, kann ekki líffræði á íslensku lengur). Svo skipta frumurnar sér á billjón þangað til að þær þekja diskinn. Þegar því stigi málsins er náð, þá bæti ég kalsíum út í ætið hjá þeim, litlu skinnunum (no pun intended), og lyfti þeim þannig að þær séu í snertingu við loft. Og viti menn, hvað gera þær þá? -Þær fara að hrúgast upp og verða að ósvikinni húð í krukku.

Ég er svo spennt að ég er að farast. Verst að insúlínið handa frumunum var ekki til hjá Sigma og ég fæ það ekki fyrr en eftir þrjár vikur, þannig að ég þarf að bíða aðeins áður en ég get hafist handa. Það líða örugglega líka nokkrir mánuðir áður en þetta fer allt að virka hjá mér.

En það er kannski alveg í lagi, því að í næstu viku fæðast fyrstu erfðabreyttu mýsnar mínar.

Posted by erna at 11:59 EH