Í dag stendur Ameríka á öndinni yfir brjóstunum á Janet Jackson. Málið er að í hálfleiknum á Superbowl var hún á sviðinu ásamt Justin Timberlake, og hann fletti af henni brjóstahaldaranum öðrum megin svo að brjóstið á henni sást, með silfurlitaðri stjörnu á geirvörtunni.
Jedúddamíamín, það voru börn að horfa á, hverslags áhrif heldurðu að þetta hafi á þau, gvuðminngóður, þetta er sjónvarpsefni fyrir alla fjölskylduna... Hneyxlunarkórinn stöðvast ekki og það er varla talað um annað, hvort sem það er á kaffistofum eða í fréttatímum sjónvarpsstöðva.
Svo eiga MTV, CBS, Janet og Justin yfir höfði sér milljónasektir fyrir þetta ósiðsamlega athæfi ogégbaraveitekkihvað.
En ætli ég sé ekki að misskilja þetta allt, ég þarf greinilega að fara að hugsa um venjuleg kvenmannsbrjóst sem hlutgerfingu sora og siðleysis.