Miðvikudagur, 4 febrúar, 2004
Loksins, loksins

Jæja, það hlaut að koma að því. Mín er bara komin með gemsa. Eftir þrálátar beiðnir eiginmannsins og vinanna ákvað ég að láta undan, svona fyrst að Mörður var líka að fá sér gemsa, tilvalið að skella sér á svona fjölskylduprógramm.

Það er reyndar fyndið að segja fólki að maður hafi aldrei átt gemsa. Ég hef lent í því nokkrum sinnum undanfarið að fólk hafi horft á mig fyrst með undrunaraugum og svo færst bros á andlitið á fólki. Það þykir greinilega svakalega kúl að hafa aldrei fundist maður þurfa á gemsa að halda.

Ég verð að viðurkenna að þetta er pínu sport og allt það, en ég er ekki alveg sannfærð um að ég þurfi á svona tæki að halda. Málið er nefnilega að ég er nálægt síma í vinnunni mestallan daginn, það er ekki símasamband í subway, og þegar ég er ekki í vinnunni, eða við síma heima hjá mér er ég annað hvort í gymminu, og er þá yfirleitt ekkert á þeim buxunum að vera að spjalla í gemsa, eða þá að ég er einhvers staðar að gera eitthvað skemmtilegt með vinum mínum og dytti bara ekki í hug að svara símanum í miðjum samræðum og skemmtilegheitum. Þannig að ég hef það á tilfinningunni að gemsinn minn eigi eftir að virka pínu lítið eins og frekar dýr símsvari.

Til þess að hafa nú örugglega efni á að eiga svona dýrgrip (það er sko ekki ódýrt hér um slóðir get ég sagt ykkur), þá er ég í sérstöku átaki við að laga mitt eigið kaffi á morgnana í staðinn fyrir að borga fyrir kaffi í kaffivagni, og svo að taka ókeypisrútuna sem gengur í vinnuna mína (á mjög undarlegri tímatöflu). Sem veldur því að ég þarf að vakna fyrr, bæði til að laga kaffi og til að ná rútunni. Og svo vinn ég líka lengur á kvöldinn vegna þess að það er svo langur tími á milli rútuferðanna þá.

Þetta er þannig algerlega dyggðum prýtt líf að eiga gemsa.

Posted by erna at 11:53 EH
Magadansandi bókasafnsfræðingar

Heh.. þetta er frekar skondin síða. Myndagallerí af bókasafnsfræðingum sem eru líka magadansarar! Híhí... Einhvern veginn hef ég aldrei tengt þetta tvennt saman! Ætli Hel kunni magadans?

Posted by erna at 06:32 EH
Magadans

Ég fór á fætur fyrir klukkan sjö í morgun. Ástæðan? Jú, ég er á leiðinni út í Kólumbíugymmið að skrá mig í magadans með henni Brynhildi. Á þessu misseri ætlum við sumsé að læra að sveifla mjöðmunum í takt við seyðandi mússík. Ég hlakka frekar mikið til, það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.

Og svo er náttúrulega ekki úr vegi að kunna magadans þannig að maður geti séð fyrir sér ef allt annað klikkar.

Posted by erna at 07:40 FH