Föstudagur, 6 febrúar, 2004
Hæ, hæ, ég hlakka til!

Við erum að fara aftur á skíði á morgun. Júhú er eina orðið sem mér dettur í hug. Framan af vikunni var veðurspáin fremur slök, það átti að rigna og skíðanautnarstuðulspáin var rétt svo í fjórum af tíu á miðvikudaginn, hækkaði upp í sjö í gær og nú er því spáð að stuðullinn verði átta á morgun, hámarkshiti tveggja stiga frost og að það gangi á með hríðum. Kannski ekki það besta, það væri skemmtilegra ef það væri aðeins kaldara, en ég kvarta ekki!

Posted by erna at 10:38 EH