Við Binna fórum í fyrsta magadanstíman í dag. Það var tjúllað stuð! Við lærðum bara svona beisik atriði í því að dilla mjöðmunum og svona, en það var ýkt gaman samt. Tónlistin er líka svo kúl. Mér hefur alltaf fundist svona seyðandi miðausturlandatónlist svo flott. Svo er þetta geðveikt workout fyrir magavöðvana og ekkert smá góð æfing í réttri líkamsstöðu, sem er akkúrat það sem ég þarf útaf bakinu á mér. Þannig að við sláum skrilljón flugur í einu höggi. Á dagskránni er svo að fara og kaupa slæðu með einhverju dinglumdangli til þess að vefja um mjaðmirnar. Úje beibí....