Sunnudagur, 15 febrúar, 2004
Alive

Æji, ætli maður verði ekki að blogga smá, svona bara upp á grín og gamlan vinskap. Gera upp vikuna eða eitthvað. Ástæðan fyrir bloggfalli var sú að ég náði mér í kveffjanda og var því ekki upp á marga fiska í lok vikunnar.

Vinnan var samt alltaf jafnspennó og svona, og nú er ég að undirbúa fyrirlestur sem ég á að halda á þriðjudaginn í erfðafræðikúrsinum sem ég er að taka. Ég verð nú bara að segja að ég er ekkert smá ánægð með þennan kúrs, hann er ótrúlega gagnlegur. Eins pirruð og ég var upphaflega að þurfa að taka annan kúrs, er ég núna í skýjunum yfir því hvað ég er búin að læra mikið, og það bara á þremur vikum, án mikillar fyrirhafnar. Ég er líka búin að nýta rútuferðirnar í skíðaferðunum vel til lesturs og svona.

Við stefnum jafnvel á að fara aftur á skíði á laugardaginn, ef veður leyfir, en við sjáum til, því að í augnablikinu er spáð rigningu. Það er enn vika í það þó og spáin gæti breyst verulega!

Posted by erna at 01:07 FH