Þriðjudagur, 17 febrúar, 2004
Erna þreytta... híhí...

Oh.. alltaf þegar ég blogga þessa dagana virðist það vera um það hvað ég er þreytt! Úff.. Og núna er ég sumsé dauðþreytt.. geisp. Það er algerlega eins og að vera í kvöldskóla með hundraðogfimmtíuprósent vinnu að vera að taka kúrs svona komin á þriðja ár í náminu, maður vinnur sína tólf tíma á dag, notar kvöldin til að æfa og lesa og helgarnar í verkefnavinnu og undirbúning fyrirlestra.

Ég hélt fyrirlestur í tímanum okkar í dag og það voru líka líflegar umræður í gangi. Ég er búin að komast að því að mér finnst sameindaerfðafræði alveg svakalega spennandi. Í dag var ég til dæmis að lesa grein um erfðafræði úrlausna fjölskyldutogstreitu hjá músum (eh.. þýðingin hjá mér er ekki alveg rétt, en þegar maður les greinina, þá er hægt að túlka fyrstu setningarnar svona).

Hager R, Johnstone RA.
The genetic basis of family conflict resolution in mice.
Nature. 2003 Jan 30;421(6922):533-5.

Verst að ég kann ekkert í hegðunarfræðum eða hvað sem það nú kallast á ástkæra, ylhýra, til þess að dæma um hvort að greinin sé alger erfðafræðileg snilld, eða þvílík steypa. Mér fannst helst til margar forsendur teknar sem gefnar, en kannski er það bara af því að þetta er Nature "letter", en höfundar fá lítið ráðrúm til að fara út í smáatriði í þannig grein. Það verður spennandi að ræða greinina í næstu viku og sjá hvað fólki finnst.

Posted by erna at 05:26 EH