Miðvikudagur, 18 febrúar, 2004
Rassgatans...

Æji hvað ég nenni ekki að fara að æfa maður! Úff, úff, úff. Það er semsé á planinu að drífa sig í gymmið og sprikla aðeins og lyfta slatta, en í staðinn er ég föst hér og les TONY (the obsessive guide to impulsive entertainment) og bara nenekkineinu.

Í dag var bara svona venjulegur labbdagur, ég gerði nokkrar tilraunir, enginn þeirra virkaði, þannig að á morgun og hinn verður svona "hvað klikkaði?" dagur og um helgina, get ég sennilega endurtekið tilraunirnar þannig að þær virki. Það virðist a.m.k. ekki stefna í skíðaferð, veðurspáin fyrir laugardaginn er ansi slöpp, rigning og læti og varla get ég sleppt magadansinum á sunnudaginn. Ekki einu sinni fyrir skíðaferð.

Jæja, best að druslast í spriklfötin...

Posted by erna at 06:40 EH