Nú er ég sko komin með IP adressu í vinnunni fyrir tölvuna mína (tók mig bara næstumþví ár að drífa í að biðja um hana), þannig að þegar ég er í stuði og er að bíða eftir því að gelin mín keyrist og svona, get ég bloggað í vinnunni. Stuð!
Núna er ég einmitt að bíða eftir því að PCR gelið mitt keyrist og líka eftir því að geta skipt úr eggi yfir í mjólk á mótefnalitununum mínum. Tjúllað stuð. Á meðan er ég búin að vera að reyna að láta tölvuna finna tölvunetið hjá okkur hérna á labbinu, og það tókst, nema að sörverinn meinar mér aðgang, biður mig ekki einu sinni um aðgagnsorð. Windows ME er svo mikið rusl. Þetta er víst venjulega ekki vandamál hér með XP sko. Við vorum svo ósegjanlega óheppin að kaupa tölvuna okkar nokkrum vikum áður en XP kom út og sitjum því uppi með ME-ruslið. Ég get auðvitað alltaf uppfært, en ég veit ekki hvort það verður neitt betra, því að tölvan er ekkert að deyja úr diskastærð og vinnsluminni.
Þannig að ég þarf sennilega bara að sætta mig við að nota vefþjóninn okkar í gegnum FTP. Skárra en ekkert svosem...