Já, eins og segir í Hobbitanum hans Tolkien, þá er ekki mjög áhugavert að segja frá atburðum sem gerast þegar allt leikur í lyndi. Þannig líður mér eiginlega núna. Það er alveg svakalega gaman að vera til. Ég sprett fram úr rúminu á hverjum morgni, tilbúin að takast á við daginn. Það er gaman á labbinu, verkefnið mitt alltaf að taka á sig meiri mynd og svona. Það er gaman í kúrsinum sem ég er að taka og svo er ógisslega gaman að hanga í gymminu á kvöldin, fara í spinning og lyfta og hlaupa og magadansa. Svo er veggjaklifur planað á næstunni, -tjúll. Svo er líka bara alveg svakalega gaman að hitta stelpurnar nokkrum sinnum í viku og slúðra og fíflast. Það er heldur ekki leiðinlegt að hitta sæta eiginmanninn minn á veitingastöðum hverfisins okkar, til að fá okkur sússíbita og spjalla...
Sumsé, það er mikið að gera á öllum vígstöðvum, mjög gaman, en gæti líka verið ástæðan fyrir því að ég er ekki búin að svara neinum tölvupóstum eða blogga undanfarið. Kannski ég fari nú að bæta úr því....