Þriðjudagur, 24 febrúar, 2004
Fat Tuesday

Í dag er feiti þriðjudagurinn í Ameríkunni, líka kallaður Mardi Gras. Ætli hann myndi ekki kallast sprengidagur á íslensku. Það er almennt ekki haldið upp á þennan dag hér þar sem við búum, en fyrir sunnan er haldið upp á daginn með átveislum. Ég var búin að plana að elda einhvern viðeigandi Fat Tuesday rétt, Gumbo eða Jambalaya, eða annað gúmmelaði að hætti suðurríkjabúa, en þau plön fóru fyrir lítið í amstri hversdagsins. Mér finnst nefnilega Cajun matur vera með því besta sem ég fæ og ég væri alveg til í að halda upp á sprengidag á hverju ári með almennilegri Louisiana innblásinni átveislu.

Cajun matur er annars alveg hreint svakalega skemmtilegur bræðingur á milli alls konar matargerðarlista. Creole kallast svipuð matargerðarlist frá nær sama svæði, en það eru fínni réttir og meira af sjávarréttum, en svipuð krydd notuð. Það var matur ríka fólksins að mér skilst, sambland af spænskri og franskri matargerðarlist sem varð Creole þegar notað var það hráefni sem fékkst fyrir sunnan. Cajun var svo matur þrælanna og fátæka fólksins. Enda bera gúmbó og djambalæja þess merki að vera afgangamatur, þar sem öllu sem til var var fleygt saman í einn stóran pott og svo kryddað vel og hrært í. Gúmbó er eiginlega bara svona chilli-kjötkássa, ég elda reyndar frekar bauna-gúmbó með allskonar baunum, og jambalayja er hrísgrjónaréttur.

Ég er meiri cajun manneskja af því að mér finnst kássur svo góðar, en þær eru einmitt aðalsmerki cajunmatar. Það verður samt ekkert gúmbó í matinn hér í kvöld. Í staðinn er Mörður að elda einhvern svakalega leyndardómsfullan fiskirétt. Það eina sem ég fékk að vita var að ég mætti ekki borða eplið og appelsínuna í ávaxtakörfunni okkar og að hann þyrfti að koma við á leiðinni heim og kaupa einn banana. Ég bíð spennt...

Posted by erna at 09:46 EH