Miðvikudagur, 25 febrúar, 2004
Sybbin

Þessi dagur er búinn að vera brjálæðislega klikkaður. Það voru sirka milljón hlutir sem ég þurfti að gera og nú er ég búin að þeim öllum og sit hér og bíð eftir að klukkan verði nógu margt til þess að taka rútuna heim.

Ég vaknaði líka upp úr sex í morgun og fór í spinning. Það var svaka stuð, en þar sem ég svaf bara í fjóra tíma síðustu nótt er ég frekar lúin núna. Það þýðir samt ekkert að láta deigan síga því að ég var búin að lofa að kíkja við hjá stelpunum og panta með þeim mat og föndra og svo þarf ég að fara eftir það og útbúa litaútprentanir af smásjármyndunum mínum til þess að hafa í labb-bókinni minni.

Ég vona bara að maturinn með stelpunum hressi mig við fremur en roti mig alveg, þannig að ég sofni ekki alveg yfir tölvunni í tölvuverinu seinna í kvöld...

Posted by erna at 08:07 EH