Þriðjudagur, 2 mars, 2004
Tjúllað stuð

Það er tjúllað stuð á labbinu þessa stundina, en það eru allir farnir nema ég og Cave er í botni í græjunum og ég syng með hástöfum. Við erum svo heppin að einn labbfélaganna er græjusjúklingur, þannig að það eru svakalega góðar græjur hér á labbinu. Ég held að það hafi varla nokkurntíman verið gerður betri diskur en Nocturama, alger schnilld.

Ég er að klára mótefnalitunina mína og framundan eru nokkrir klukkutímar við smásjána. Það er barasta gott mál sko, og vonandi niðurstöður framundan.

Annars er búið að vera alveg yndislegt veður hér undanfarna daga. Ég fór á stuttermabolnum í vinnuna í dag, enda var 18 stiga hiti og læti. Verst að ég hef lítið getað notið veðursins, nema bara í formi útsýnis út um gluggan minn, en ég var að skipta um skrifborð hér á labbanum og horfi beint suður eftir allri Manhattan þegar ég lít upp. Ekki verra.

Annað var svosem ekki í fréttum. Lifið heil.

ps. Hver sá sem sendi okkur nammið í dag á skilið þakkir fyrir. Við þorum hins vegar ekki að borða það fyrr en komið er í ljós hvort að það sé í alvörunni handa okkur...

Posted by erna at 09:17 EH
Namminammi namm

Það kom pakki með póstinum i dag með fullt að nammi. Ég er frekar sáttur við það. Nema hvað, ég veit ekki hver lét senda þetta til mín. Hmmmmm

Posted by mordur at 01:00 EH