Það var engin önnur en hún Melissa vinkona og nágranni okkar sem kom okkur á óvart með hrískúlum og hraunbitum. Þess vegna bar náttúrulega engan árangur að auglýsa eftir sendanda á blogginu, því að hún les það náttúrulega ekki.
Hún var búin að segja mér um daginn að hún ætlaði að senda okkur eitthvað óvænt, af því að við erum alltaf að passa hana Miss Maddie. En einhvern veginn grunaði mig ekki að hún hefði fundið íslenskt nammi á netinu til þess að senda okkur!