Fimmtudagur, 4 mars, 2004
Of gaman!

Oh, nú get ég ekki sofnað. Ég er búin að vera gersamlega hyper í allan dag, hef ekki getað stoppað, vann og vann og vann og vann og kom ekkert smá miklu í verk, fór út að hlaupa og pantaði mat með stelpunum, fór heim og reyndi að sofna, en ég er enn hyper og klukkan er hálf fjögur. Ég veit alveg af hverju ég get ekki sofnað, ég er búin að vera að hugsa of mikið um verkefnið mitt, en það er orðið frekar spennandi þessa dagana. En það er nákvæmlega það sem lífið snýst um þessa dagana, vinna og vinna og vinna. Sem er náttúrulega ekkert smá gott mál, ég vona að það haldi áfram þannig, því til þess er ég hérna! Mér finnst bara svo gaman á labbinu, bæði af því að ég er að vinna með frábæru fólki og svo líka bara af því að vinnan sjálf er frábær. Mér finnst svo gaman að vera með mússík í eyrunum og standa við bekkinn minn og blanda saman dóti, þurrka af smásjárglerjunum, setja nýtt mótefni á, snúa mér að næsta verkefni í smá tíma, pípettera smá DNA, ljósmæla allt dótið, framkalla litunina mína.... lesa smá... passa upp á mýsnar... Allan tíman er ég að hugsa um einhver efnaferli, spá í hvaða hvörf eru í gangi í tilraununum mínum og, og, og... oh.. af hverju er þetta svona gaman? Og ég er svo spennt og ég er með svo margar hugmyndir um hvað ég gæti gert næst og, og, og, og.... Greinilega uppsveifla á rússíbananum núna =) En ég er greinilega of æst, því ég get ekki sofið!

Posted by erna at 03:35 FH