Mánudagur, 8 mars, 2004
Salig

Uppáhalds danska orðið mitt er salig. Það er bara eitthvað svo DANSKT. Það er eiginlega ekki til neitt svona orð í íslensku eða ensku, veit ekki með sænsku eða norsku. Jú, ég væri ekki hissa þó að norskan væri bara eins og þeir segðu bara salig, en ég efast um það... hm...

Posted by erna at 11:46 EH
Lasse...

Når nu min verden bliver kold og forladt
Finder jeg trøst i min kæreste skat
Klipper motiver med drømme og saks
Pappirsilouetter af den fineste slags...

Ég fíla Kim Larsen í strimla, en þú?

Posted by erna at 11:07 EH
Uppþvottavélarsilungur

Fyrir þá sem eiga uppþvottavél, þá langar mig til að benda á að þær eru víst alveg tilvaldar til þess að gufusjóða fisk. Spurning hvort maður ætti að benda Nönnu Rögnvalds á þetta svo hún geti skellt þessu í Gestgjafann.

Posted by erna at 10:15 EH
Plokkari

Mörður gerði alveg skrambi góðan plokkfisk á laugardaginn, eftir uppskrift frá Freyju mágkonu, en hún fékk hana frá Kaffi Vín. Núna sit ég og nýt afganganna við skrifborðið mitt á labbinu. Ég hikaði aðeins við að borða þetta hér, því að fólk er oft mjög viðkvæmt fyrir fiskilykt hérna og þar að auki lítur plokkfiskur kannski ekkert sérstaklega vel út. En viti menn, það eru allir í flogakasti hérna yfir því hvað lyktin sé nú góð og ég er búin að lýsa uppskriftinni fyrir hálfu labbinu. Verst að vera ekki með almennilegan þrumara með mysingi með.

Posted by erna at 01:10 EH
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Oh.. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna virðist eiginlega ekkert vera alþjóðlegur. Að minnsta kosti kannast enginn við hann hér í Ameríku. Þannig að ég ber bara út fagnaðarerindið...

Posted by erna at 11:51 FH