Þriðjudagur, 9 mars, 2004
Altså

Erna litla er sybbin, kominn tími til að fara að hátta. Í dag gerðist ekkert merkilegt svosem, en dagurinn var stórfínn. Ég setti upp transfer fyrir southern blot, gaf húðfrumunum mínum að borða, litaði húðsýni með flúrljómandi mótefnum, fór í erfðafræðifyrirlestur í 3 tíma, kom til baka og bjó til fjórar mismunandi stuðpúðalausnir fyrir tilraun morgundagsins og égveitbarastaekkjikvað!

Þegar ég er að búa til böffera, þá er stuð. Ég veit ekki hvað það er, en að blanda saman lausnum er bara alveg frábært í mínum heimi. Hálfur millilítri af þessu og tíu míkrólítrar af hinu, smá salt og smá sápa og viti menn, út kemur glær lausn sem fer í þartilgerða flösku og upp í hillu og verður notuð til að galdra á morgun. Úje. Stundum vildi ég geta verið bara endalaust í vinnunni og í dag var svoleiðis dagur. Og í gær og í fyrradag og daginn þaráður. Ég er bara að skrásetja þetta, því að seinna, þegar ég rekst á hindranir verð ég að muna eftir dögum eins og í dag þegar allt er gott.

Posted by erna at 11:05 EH