Fimmtudagur, 11 mars, 2004
Yeeeaaagghhhhh!!!!

Það er allt að gerast á rannsóknarstofunni, ég bara sver það! Ég fékk tvennar alveg frábærar niðurstöður í dag! Ég er í skýjunum, gersamlega, eða jafnvel bara skýjum ofar. Ég held ég sé endanlega orðin sannfærð um fýsileika verkefnisins míns, og nú er það bara að bretta ermarnar enn lengra upp...

Það sést líka alveg á mér hvað ég er spennt, því að ég er alveg kafrjóð og augun í mér glampa eins og í geðsjúklingi. Eftir fundinn með prófessornum mínum má segja að hún hafi líka litið þannig út. Tvær geðbilaðar vísindakonur... VARÚÐ!!!

Og nú langar mig náttúrulega mest til að detta bara í það!

Posted by erna at 04:45 EH