Mánudagur, 15 mars, 2004
Exhausted

Ég er þreeeyyyyyttttt og ég er svööööönnnng. Spinningtíminn var alger killer =) Ég meika varla að klára tilraunina mína ég er svo þreytt. Ég verð komin heim eftir klukkutíma, og þá verður það sko barasta kvöldmatur og svo beint í rúmið.

Posted by erna at 09:07 EH
Meiri vöfflur

Ég var að fá SMS frá Merði:

"Það vantar sultu með vöfflunum."

Greinilegt hvað hann er að gera í tíma, a.m.k. ekki að fylgjast með fyrirlestrinum!

Posted by erna at 05:27 EH
ohh.....

Mig langar í vöfflu. Er ekki einhver til í að koma með vöfflu til mín? Ég nenni að minnsta kosti ekki í spinning, sérstaklega ekki af því að ég þarf að setja sekkondarí mótefnið mitt á sneiðarnar eftir spinning og lyftingaræfingar. Það verður fatlað. En nú er ég bara að bíða eftir því að spírinn gufi upp af DNAinu mínu og get því dreift hugsunum mínum um heimsbyggðina. Aðallega samt norðurávið held ég...

Posted by erna at 04:30 EH
Vöfflubölvun?

Úff, það er einhver mánudagur í mér. Ætli ég hafi ekki bara lært yfir mig í gær eða eitthvað, því að ég er að sálast úr syfju, en samt svaf ég vel og lengi í nótt. Mig svíður líka í framan, af einhverjum óútskýranlegum ástæðum líka. Ætli ég sé orðin svona viðkvæm, hef kannski ekki þolað vindinn sem blés framan í mig á skokkinu í gær. Og svo er ég líka að drepast úr þorsta.

Ég held að guðirnir séu að refsa mér fyrir allt vöffluát helgarinnar. Hvernig er þetta annars með vöfflur, er eitthvað í þeim sem veldur hungurtilfinningu? Ég setti bara það sama og venjulega í soppuna, en eftir kvöldmatinn í gær borðaði ég tvær vöfflur í eftirmat og varð svengri fyrir vikið. Ég er nokkuð viss um að ég gæti borðað vöfflur samfleytt í heilan sólarhring og alltaf haft pláss fyrir fleiri. Vill einhver koma í kapp?

Posted by erna at 02:01 EH