Það er bara brjáluð snjókoma á Manhattan. Reyndar sýnist mér hún vera að breytast í rigningu, en það er búið að snjóa í allan morgun. Það er náttúrulega agalegt, því að á meðan sveltur fólk inni í húsum. Það er nefnilega ekki hægt að skella sér út í stórhríð og kaupa sér súpu. Jú, nema náttúrulega að maður eigi regnhlíf.
Ég bauðst til þess að fara út og kaupa mat handa nokkrum labbfélögum, en þá skömmuðust þau sín og drifu sig bara út. Þau eru ekki enn komin til baka, ég vona að þau hafi ekki orðið úti.