Oh.. nú er ég allt í einu komin með alveg hreint svakalega heimþrá! Ég talaði við pabba í morgun og svo Siggu tengdamömmu áðan og nú langar mig bara að fara heim og hitta alla... Djí. Enda hef ég ekki komið að fögru landi ísa í eitt og hálft ár. Maður er bara að verða útlendingur. Kani í húð og hár. Með bleikt tyggjó í hvítum strigaskóm og ljósum gallabuxum.
Annars er ég að fara að skella mér á skíði á morgun. Möddi kallinn er svo bissí að hann kemst ekki með, allt á fullu hjá honum í skólanum, svo að ég dobblaði bara hana Yin Mei til að koma með mér. Það er búið að snjóa svo mikið í vikunni að það er allt á kafi í Hunter. Ég hlakka ekkert smá til að bruna niður brekkurnar á tjúllaðri fart (eh.. eða þannig).
Og svo ætlar hún Herdís mín að kíkja á okkur á sunnudaginn, það verður nú meira fjörið. Spurning hvort að það sé ekki eitthvað hægt að spilla henni svona í stórborginni...