Mánudagur, 22 mars, 2004
Redface

Ég hángi hér bara á labbinu og bíð eftir að Herdís hringi í mig. Hún er í stuttri héimsókn hér í borg og ég sleppti öllu tilraunastandi í dag til þess að geta hitt hana seinnipartinn. Jeijj...

Annars þá skellti ég mér á skíði með Yin Mei á laugardaginn. Það var hörkustuð, (nema í rútunni á leiðinni, ég þurfti að sitja við hliðina á einhverjum ókunnugum manni sem steinsvaf og hraut og tók allt plássið og var þar að auki með geðveikan bóner allan tímann).

Við renndum okkur og renndum okkur og ég er orðin alveg ógisslega klár. Þetta er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið lengi, að ákveða að læra á skíði. Ég hugsa að á næsta ári prófi ég líka bretti, bara svona upp á djókið.

Á leiðinni heim í söbvei var gónt alveg ótrúlega mikið á mig, mér til mikillar furðu, því að ég var ekki með húfuna góðu eða neitt... Þegar ég kom heim gólaði Mörður upp yfir sig "jesús minn almáttugur, hvað kom fyrir". Og þá var ég svona bara þokkalega illa brunnin í framan og með geðveikt far þar sem húfan hafði náð yfir ennið á mér.

Ég þurfti að gera svo vel að meika duglega yfir þetta, því að planið var að halda upp á afmælið hans Mödda niðri í kínabæ. Og mig langaði ekki alveg að vera miðpunktur athyglinnar á leiðinni niðreftir líka. Þannig að ég sparslaði bara duglega yfir andlitið á mér og setti á mig grænan augnskugga til þess að vega upp á móti rauða litnum.

Ég er orðin aðeins skárri í framan í dag, en lít samt frekar bjánalega út. Úff....

Posted by erna at 02:49 EH