Þriðjudagur, 23 mars, 2004
Möddi á ammælídag

Myndarlegasti íslenski karlmaðurinn (að öllum öðrum ólöstuðum) á afmæli í dag. Hann kvaddi mig með kossi og fór eldsnemma í skólann í morgun. Við héldum reyndar upp á afmælið hans með tíramísú á Ferrara á laugardaginn, en kannski við gerum eitthvað í kvöld svona í tilefni dagsins.

Posted by erna at 04:03 EH
Niður með einstaklingshyggjuna, hún virkar ekki

Það sem stendur góðri menntun og lífsgæðum fyrir þrifum á Íslandi er að mínu mati viðhorf núverandi ráðamanna landsins. Og þess vegna kemur mér ekki á óvart að sjá þessa ályktun Heimdalls.

Mér finnst þetta vera svo óendanleg rökleysa að það hálfa væri nóg. Samkvæmt ályktuninni felur menntun bara í sér ábata einstaklingsins og því á hann að greiða fyrir hana. Þetta er helsta rökvillan í ályktuninni og gegsýrir reyndar líka ákvarðanir stjórnvalda, að þjóðfélagið sem heild græði ekki á menntun, heldur sé hún einungis ávinningur þess sem hana hlýtur. Hér voru stofnendur Háskóla Íslands mun framsýnni en núverandi stjórnvöld og Heimdallsfólk, sem styður þá afturför að rukka skólagjöld.

Er málið þá ekki líka að rukka fólk fyrir sjúkrahússvist og alla heilsugæslu, því að sömu rök gilda þar, ávinningurinn er einstaklingsins.

Þetta er svo mikil fornaldar hugsunarháttur ég bara næ þessu ekki. Þetta er akkúrat það sem stendur framförum í landinu fyrir þrifum. Drekkjum bara landinu í vatni svo að það sé hægt að reisa þriðja heims fabrikkur og höldum menntastiginu lágu, því að það er líka bara best að það vinni allir í álveri.

Svona einstaklingshyggja er eitur í mínum beinum. Hún virkar bara ekki nema fyrir fáa. Hún virkar fyrir ríka fólkið í landinu, en gerir þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari. Ég sé afleiðingar þess á hverjum degi hér vestanhafs, og er helsta ástæða þess að mig langar ekki að búa hér til langframa og því langar mig ekki heldur að búa á Íslandi ef það verður líka land einstaklingshyggjunnar.

Posted by erna at 09:49 FH