Laugardagur, 27 mars, 2004
Tjutjugustjigahjitji

Vááá, það er bara að koma vor held ég barasta! Það er tuttugu stiga hiti úti og alveg fráááábært hlaupaveður af því að það er skýjað. Ég er búin að sitja í morgun upp í sófa og lesa mér til skemmtunar, ég er í nokkurra klukkutíma andlegu fríi frá því að vera nemi, vikan á labbinu var stormasöm og ég þarf smá pásu. Ég lenti í smá intellektjúal árekstri við yfirmann minn, kannski smá angi af því sem hún Herdís talar um hér.

Þannig að í dag er bara dagurinn sem ég geri bara skemmtilega hluti. Engar skúringar, ekkert uppvask, engin tiltekt. Bara lesa, hlaupa elda og lesa kannski meira =)

Posted by erna at 01:23 EH