Mánudagur, 29 mars, 2004
Skíta-fýla

Mikið afskaplega er ég eitthvað illa fyrir kölluð í dag. Ég er búin að vera morgunfúl alveg frá því að ég fór fram úr. Klukkan er orðin sex og ég er ennþá að deyja úr morgunfúllyndi og geðvonsku og pirringi, svo eitthvað sé nefnt.

Og nú sit ég hérna og vorkenni sjálfri mér afþví að ég má ekki fara út að hlaupa í góða veðrinu og yfir því hvað mér er illt í bakinu og yfir því hvað það er nú afspyrnu leiðinlegt að fara í gymmið að æfa. Hver nennir því svosem? Og ég er líka draugfúl út í sjálfa mig af því að ég veit að ég á ekki eftir að sofna í kvöld af því að ég nenni ekki að fara að æfa. Hvað er til ráða?

Posted by erna at 06:33 EH