Föstudagur, 9 apríl, 2004
Fasta á föstudegi?

Ég var spurð í morgun hvort að ég fastaði í dag af því að það væri föstudagurinn langi. Ehemm... ég átti bágt með að stilla mig, en sagði vinkonu minni að ég væri algerlega trúlaus og guðlaus manneskja. Sú sem spurði er nefnilega gyðingur og er ekkert búin að borða nema matzos me sultu í viku. Hún stelst reyndar stundum til þess að fá sér hnetusmjör, en það er víst ekki leyfilegt.

Reyndar var ástæða þess að hún spurði sú að kaþólsk kona sem ég vinn með hefur ekki borðað kjöt frá því á sprengidag og hún fastaði í dag til heiðurs frelsaranum.

Það er ótrúlega gaman að læra á svona fjölþjóðlegum stað. Það vóg þungt þegar ég valdi skólann að útlendingahlutfallið er frekar hátt í deildinni minni. Og ég sé ekki eftir því vali, ég er alltaf að læra eitthvað nýtt um framandi menningarheima. Vissuð þið til dæmis að á nýársdag kínverja á maður að klæðast rauðu, helst rauðum nærfötum? Og núna í vikunni sagði Tælendingurinn í hópnum mér að á hans heimaslóðum þættu nýfæddir músarungar mikið lostæti og væru taldir mikill "afródísíak". Á móti kemur að labbfélagarnir fræðast um súra hrútspunga og annað lostæti. Góð skipti, er það ekki?

Posted by erna at 10:45 EH
Að loki góðrar og annasamrar viku

Hvað er betra en að fara bara í gymmið að kvöldi föstudags hins langa, sem þó leið alveg ótrúlega hratt við tilraunastarfsemi. Við þurfum að fara snemma að sofa í kvöld, af því að við erum að fara í ferðalag með vinum okkar á morgun. Þannig að það verður bara heví wörkát og beint í bólið hjá mér.

Ferðinni er heitið inn að Montauk, á austasta hluta Long Island, en þar ætlum við að ganga smá spotta niðri í fjöru og freista þess að sjá seli. Eftir smá meira labb og hádegisverð, ætlum við í vínsmökkunarleiðangur, en það eru nokkrar góðar vínekrur þarna útfrá. Vínskápur okkar Marðar hefur heldur ekki náð að jafna sig eftir blackout kvöldið góða í ágúst, þannig að ef við smökkum eitthvað gott getur bara vel verið að við splæsum í nokkrar flöskur.

Páskadag ætla ég svo að verja alfarið á labbinu, sleppi sennilega magadansi og öllu, því að það eru þónokkrar spennó tilraunir sem þarf að byrja á og aðrar sem þarf að klára, auk þess sem ég þarf að gera heimaverkefni í erfðafræði og undirbúa fyrirlestur í sama fagi. Engin lognmolla sumsé, og alveg nóg að gera!

En núna ætla ég að vinna að því að verða mössuð og súpersetta smá úti í gymmi.

Posted by erna at 08:06 EH
Urrr

Af hverju finnst mér allir pistlar Björns Bjarnasornar FULLIR af hroka? Æ, æ, nú má hann greyið ekki vera í friði með sínar hæstaréttardómaraskipanir. Nú má ekki styggja karlaveldið ha, hann má brjóta jafnréttislög af því að Svavar Gestsson gerði það. Hvaða rök eru það? Og til hvers í ósköpunum að hafa kærunefnd jafnréttismála ef menn ætla bara að vera ósammála úrskurðum hennar og fara bara eftir þeim þegar það HENTAR. Ég segi nú bara ÁFRAM JÓHANNA! Mér sýnist hún vera að gera góða hluti...

Posted by erna at 09:19 FH