Þá er vorið blessað komið fyrir alvöru hér í borg. Trjáviðir ýmiss konar blómstra af mesta mætti, þannig að nú eru göturnar hér alsettar bleikum og gulum litum. Undanfarna daga er hitinn búinn að vera um tuttugu stig, en á morgun munu gráðurnar verða þrjátíu að tölu, hvorki meira né minna...
Ég er búin að vera frekar lasin undanfarið, einhver kveffjandi að hrjá mig, þannig að tilveran er búin að vera soldið erfið. Ég gat því miður ekkert slakað á í vinnunni, það hefði seinkað mér um heilan mánuð að sleppa tilraununum sem ég var að gera. Svona er það að vera að vinna að verkefni tengdu þroskunarfræði músa, þær bíða ekkert með að eldast þessar elskur þó maður veikist eða veðrið sé gott. Það var því frekar þreytt og úrill Erna sem kom heim til Marðar á kvöldin þessa vikuna. En í dag virðist þetta eitthvað vera að skána, að minnsta kosti er hausinn á mér ekki eins og hann sé að splúndrast. Líka eins gott, því að það liggur mikil vinna fyrir í dag og út vikuna.
Ég kíkti nú samt í hádeginu út á JouJou og borðaði súpu þar úti í sólskininu á meðan ég las grein um NFkappaB í húðmyndun. Næsh...
Það verður brjálað að gera hjá mér á næstunni. Ég þarf að afla eins mikilla gagna og ég get næstu tíu daga, bæði til þess að sýna á fundi með nokkrum prófessorum ásamt leiðbeinanda mínum og svo líka af því að í lok mánaðarins er ég að fara á ráðstefnu og svo beint á eftir hana held ég labbfund.
Svo er líka nokkuð um heimsóknir næstu daga, því að Berglind Ósk vinkona ætlar að kíkja á mig í vikunni og svo eru pabbi og Björg að koma eftir þrjár vikur.
Nóg á döfinni sumsé.....