Laugardagur, 29 maí, 2004
Ilmurinn úr eldhúsinu

Ég er að elda ofnbakaða ýsu a' la Jóhanna Sveinsdóttir. Þetta er fyrsta máltíðin sem ég elda í um það bil tvo mánuði, kominn tími til! Við hjónin vorum heldur framlág í morgun og sváfum framyfir hádegi, enda fórum við í dúndur kveðjupartý til Binnu í gærkvöld. Við misstum nú samt ekki alveg af góða veðrinu, heldur fórum í göngutúr í Riverside Park, en það var of hvasst til að fara á sjókajak.

Nú er Mörður myndalegi að brjóta saman þvott á meðan hann bíður eftir matnum, en þegar við erum búin að borða er stefnt í bíó á myndina Coffee and Cigarettes.

Posted by erna at 08:59 EH