Ég var að koma heim úr pottalukkupartíi helguðu Canada. Glenn, vinur okkar og nú kærasti einnar okkar, bauð í partí og steikti Kanadískt beikon og við horfðum á myndina Canadian Bacon. Það er alger snilldarmynd sem Michael Moore gerði snemma á tíunda áratugnum. Hún fjallar um Bandaríkjaforseta í krísu eftir að kalda stríðinu lauk, því hann vantar tilfinnanlega óvin til þess að sameina þjóðina. Mæli með þessarri mynd.
Em, Adel og Glenn fóru líka alla leiðina norður í Conneticut í dag til þess að kaupa kanadíska kleinuhringi í tilefni kvöldsins og þeir runnu ljúflega niður ásamt bláberjaböku, sem gerð var úr bláberjum sem voru týnd í Montreal... geri aðrir betur!
En núna er mér bara allt, allt of heitt, því að ei síjið á svæðinu hafði ekkert undan....